[clear - refresh] ---Sveinborg í þankaMUSTERI--- [created by may]

old days 04/01/2004 - 05/01/2004 05/01/2004 - 06/01/2004 06/01/2004 - 07/01/2004 08/01/2004 - 09/01/2004 09/01/2004 - 10/01/2004 10/01/2004 - 11/01/2004 11/01/2004 - 12/01/2004 04/01/2005 - 05/01/2005 08/01/2005 - 09/01/2005 12/01/2005 - 01/01/2006 01/01/2006 - 02/01/2006 02/01/2006 - 03/01/2006 03/01/2006 - 04/01/2006 04/01/2006 - 05/01/2006 05/01/2006 - 06/01/2006 09/01/2006 - 10/01/2006 10/01/2006 - 11/01/2006 11/01/2006 - 12/01/2006 12/01/2006 - 01/01/2007 01/01/2007 - 02/01/2007 02/01/2007 - 03/01/2007 05/01/2007 - 06/01/2007


miðvikudagur, maí 02, 2007
smá updeit af Villa.

Hann var að skrifa mér persónulegt bréf sem ég ætla að grípa stuttlega niður í.

,, Á fundi borgaráðs 26. apríl voruð þér kjörinn varamaður í undirkjörstjórn í Reykjavíkurkjördæmi norður á kjörstað í Ráðhúsi Reykjavíkur... Hér er um borgaralega skyldu að ræða..."

Það er naumast hátíðlegt, og talandi um traustið sem mér er veitt.

Ég ætla allavegana ekki að bregðast borgaralegri skyldu minni og starfa í kjördeild á kjördag. Hlakka til að gægjast á bakvið tjöldið.

Flokkar:


hripað 4:59 PM



l������������ra������murinn lokka������i mig ������t ������ str������ti ������ g������r, ������ bar������ttudag verkal������������sins. alla lei������ ni������ur ������ ing������lfstorg ������ar sem r������������uh������ld t������ku vi������.
forma������ur sj������krali������af������lagsins h������lt g������������a r������������u en fj������ldinn virtist ekki kunna a������ tapa s������r ������ trylling. alveg eins og f������lk gerir ������ ������������r������ttakappleikjum. missir sig og ������skrar ������egar eitthva������ markvert gerist.
,, vi������ ������tlum a������ ������tr������ma f������t������kt!" hr������pa������i forma������urinn. og ������a������ li������u sek������ndur ������������ur en ������a������ heyr������ist l������faklapp.
n������stum ������v������ vandr������������alegt en ������g haf������i ekki samvisku ������ a������ fara. a������st������������ur yr������u enn kj������nalegri ef allir f������ru.
hitti hluta fj������lskyldu minnar. fannst eiginlega fyndi������ a������ hitta krakkana h������mandi ������ sig sj������lfst������������ispulsu og me������ gulan munn af frams������knarfrostpinna. svo h������lt hersingin ������ kennarakaffi ������ kaffireykjav������k enda me������ einn kennara og 2 kennaranema innanh������ps.

spyrst svo ekki frekar til fr������kenarinnar fyrr en ������ g������������ra vina h������pi vi������ tj������rnina. ������ar heldur g������������vinur ������v������ fram a������ topp������nd s������ straum������nd.... ������ fj������rgang. ������ar til a������ vi������ rekumst ������ fuglaskilti.,, sko straum������nd breytist ������r straum������nd ������ topp������nd ������egar h������n fer ������r l������k yfir ������ tj������rn". right!


h������r m������ sj������ topp������nd/straum������nd drekkt af ������stum andam������g!


korti������ kallar ������r r������������h������sinu og vi������ flykkjumst ������anga������. a������eins til a������ finna ������ar fj������lda sj������tugra undir hrikalegri r������������u Villa Vill borgarstj������ra. ,, Er ma������urinn drukkinn? E������a kannski ������voglum������ltur og samhengislaus a������ e������lisfari?"
������a������ var ekki sj������n a������ sj������ karlinn me������ gullfestina drafandi uppi ������ p������lti. vi������ hreinlega g������tum ekki fari������ ������������ vi������ v������rum eiginlega bo������flennur. svo svakalega l������legur var hann. pant ekki undir nokkrum kringumst������������um ������urfa hlusta ������ hann live. s������rstaklega ekki ������ kokteilbo������i.



Villi a������ missa sig ������ p������lti.


eftir skemmtunina ������ r������������h������sinu rakst fylkingin ������ ������etta skemmtilega statement.

Flokkar: ,


hripað 11:38 AM



fimmtudagur, febrúar 08, 2007
You scored as Lafawnduh.

Lafawnduh

92%

Kip

67%

Deb

58%

Napoleon Dynamite

50%

Uncle Rico

25%

Pedro Sanchez

0%

Which Napoleon Dynamite character are you?!?
created with QuizFarm.com

hripað 11:01 PM



föstudagur, janúar 19, 2007
hvað gerist þegar tveir iðjuleysingjar hittast og ætla gera eitthvað svakalegt?
ekkert!

jú ég segi það ekki. það getur eitthvað gerst, en kannski ekki akkurat það sem planað er.
í dag hitti ég vöku vinkonu mína og við hlóðum hennar fjallabíl af fjallagræjum. við höfðum tvö verkefni. að viðra rebba, litla tískupelshund fjölskyldunnar, og að viðra sjálfar okkur í leiðinni. við keyrðum sem leið lá í austur að helgistað þjóðarinnar. tókum nokkur myndastopp og fantaseruðum um skíðasvæði í botnsúlum.
lítið var um snjó, hann var líklegast allur fokinn ofan í sprungu. en fallegt var það.
tókum smá dýfu ofan í gjábakkahelli enda alveg í leiðinni og alls ekki nálægt lokuðum fjallvegum!
mæli með því að fólk flykkist með smádýr sín ofan í ísaða og grýtta hella. þau geta ekki annað en notið þess.
skyndilega höfðum við keyrt um allt héraðið og vorum komnar inn á gafl í eden, þar sem vélapar gapa. þó úti væri 8 stiga frost og skerandi vindur þá fannst okkur kjörið að fá okkur ís.
rúntur okkar endaði í heiðmörkinni. lögðum úti í kanti eins og verstu perrar og hleyptum tískupelsinum litla út. rebbi fílar mest að sniffa eftir pissi en við héldum okkur við kaffið inni í bíl.

,,rosalegar útivistarkonur erum við!" dæstum við yfir kaffisopanum. ,,við erum ekki eins og liðið úti á geirsnefi sem fer út að ganga með hnoðrana sína sitjandi inni í bílnum." ,,nei við erum ekki þannig".

við erum ekki iðjuleysingjar heldur útivistarkonur. þess vegna skiptum við hundspottinu út fyrir tinnu. hún er nefnilega útivistarkona eins og við.

við brunuðum upp í bláfjöllin sem í dag opnuðu öðru sinni almenningi. við börðumst við kuldabola í miðaröð og við bindingareddingar. við bitum á jaxlinn og hugsuðum salsa í lyftunni. er ég renndi mér niður skafrennda bláfjallar-öxlina hugsaði ég :,, þetta er málið. nógu mikinn kulda og skafrenning og ég verð harðari fyrir vikið. nógu mikinn sársauka og ég á það rétt skilið að éta þorramatinn sem mín bíður. það verður ekki göfugra en þetta. þetta líf. þetta líf. "
í þriðju ferð minni var ég að rétt að toppa í háfleygni og hvað gerist.
MYRKUR
algert myrkur. ó nei.
er þetta týpískt eða hvað? þetta hátækniland með öllu fokking rafmagninu og fjallið er algerlega myrkvað.
hátækni miðahlið og ofurlyfta á aumum stað og fjallið er algerlega myrkvað.
mæn gott.
hvað með börnin? þau eiga eftir að týnast!
búum við enn í torfbæ?
en allt fór vel að lokum. við gátum hlegið að stemmingunni. ég gat leyft litlum krakka að hringja og við gáfum unglingsstrák nammi. verða ekki allir góðir vinir á ögurstundu...
unglingar fengu kannski að þjást pínku en þeir eiga þá bara þorramatinn frekar skilinn.
þeir læra kannski að meta fegurðina sem er falin í myrkvuðum himininum.
,,ooooooj sjáiði stjörnunar!"
þetta heyrðist unglingur hrópa með viðbjóði í svörtu fjallinu. æði.
við útivistarkonu héldum aftur til borgar óttans. vorum svo heppnar að keyra fram hjá sökudólginum sem er bílstjóri á útsendingarbíl útvarpsins. hann gleymdi víst að taka niður 7 metra hátt loftnetið á bílnum og keyrði óvart niður háspennilínu svæðisins!
myndir munu birtast innan skamms.
svona eyða útivistarkonur og iðjuleysingjar sínum dögum. í gagnslausa en jafnframt andlega uppbyggjandi iðju.
http://www.i-am-bored.com/bored_link.cfm?link_id=15188

hripað 11:08 PM



föstudagur, desember 08, 2006
ég hef áður minnst á tilviljanakennda hluti. þeir eru skemmtilegir.

það var samt ekki alveg tilviljun að akkurat ég ,,lenti" í því að kenna menntskælingu jarðfræði.
nei það er líklega vegna þess að ég var búin að sanna mig í æfingakennslu þar stuttu áður. auðvitað bregðst ég vel við þegar til mín er leitað í neyð og þess vegna hef ég undanfarinn mánuð verið að troða jarðfræðiþekkingu minni ofan í hálftóm ílátin sem menntskælingar eru.
mikil og góð reynsla!
held það sé samt ekki í verkahring kennara að missa úr svefn vegna áhyggna af frammistöðu annarra í prófum. smá stress í gangi með tilheyrandi harðsperrum í kjálka!

schlaka steinborg schlaka...

ætli ég sé ekki komin yfir það versta núna. þarf aðeins að klára mín próf og fjölda af blaðursverkefnum. af hverju er svona mikið um blaður í fræðigreinninni minni. ég held ég sæki um að fá að skila verkefni vorannarinnar í form dansatriðis eða látbragðsleiks.

en hvað hef ég gert til að halda sönsum síðastliðinn mánuð.

jú ég fór í bío og svo aftur í bío. borat og bond. tveir magnaðir einstaklingar sem ég fíla í tætlur.

ég kynntist manni að nafni dwell á myspace. hann er magnaður lífstílsþjálfari.

kæri lesandi ef þig skortir einhvern tíman styrk til einhvers óspennandi verkefnis. gefðu þér þá tíma til að skoða eitt video frá dwell á hverri klukkustund. ég skal lofa þér að þú munir þannig og aðeins þannig ná að halda sönsum.
www.sixtycrickets.com

í fyrradag horfði ég á sjónvarpið...í fyrsta skipti í langan tíma. á dagskrá skjás eins það kveldið var americas next top model. jú mér fannst ég fyllast kvenleika er ég horfði á tyru á sama tíma og ég hamaðist á skíðatækinu í laugum. það besta við þetta allt var þó að í nágrenninu var staddur hópur fólks í nánast sömu erindagjörðum. að horfa á sjónvarpið og sprikla. eini munurinn að þetta fólk rak annað slagið upp ótrúlegt öskur. og ástæðan...jú það var fótbolti í gangi í imbanum.
allt í einu fannst mér sem ég væri stödd á götu á ítalíu og stórleikur væri í gangi í boltanum. svo ótrúlega frjáslegt var fólkið og óhrætt að hrópa fyrir framan aðra.
ég held ég fari að stíla mínar ferðir í laugar á stórleiki í boltanum.

hripað 6:38 PM



miðvikudagur, nóvember 08, 2006
skrýtnir atburðir og hlutir sem urðu á/í vegi mínum í vikunni.

  • hundruðir hunda birtust skyndilega í skrúðgöngu á laugaveginum í mestu rigningu ársins.
  • það er skíðaskóli staðsettur í þarþar-næsta húsi við mig. nota bene. ég á enn heima í 101 rvk. er ekki enn og aftur flutt í alpana.
  • ég sá konu að borða banana í sturtu í Laugum í dag.
  • ég að taka í vörina á dansgólfinu á vegamótum.
  • viðurkenndi loks fyrir sjálfri mér eilífa ást mína á litnum appelsínugulum. hef reynt að bæla þessa hvöt í nokkurn tíma en ekki gengið betur en svo að ég fór og keypti mér gardínur í þessum lit.
var að spá í að reyna ná myndum af þessum random hlutum.
sé þó ekki hvernig ég geti náð undirmeðvitundinni á filmu. konan er líka búin með bananann. hundaskrúðgangan er farin en hundaræktarfélagið ætlar að birta myndir úr göngunni bráðlega. skíðaskólinn mun verða myndaður næst þegar það birtir á skerinu. þó það gerist ekki fyrr en í mars. að síðustu; ég hlít að vera vera á vegamot.is. er það ekki þar sem allar sætu stelpurnar birtast?


[editet] aðeins til að bæta við smá dulúð:
í gær þegar ég fór að sofa hugsaði ég stíft til merkilegrar konu. hvernig ég skildi hafa samband við hana sem fyrst enda langt síðan ég hef heyrt í henni. og ég fæ email frá henni rétt í þessu.

annað atriði. ég hugsaði stíft um það milli þess sem ég hljóp á milli verkefna í dag hvernig ég þyrfti að fá mér vinnu. viti menn. ég fæ hringingu rétt í þessu þar sem ég er beðin um að hugleiða atvinnutilboð.

stóra spurningin er...hver er það sem stjórnar þessu öllu?
er það stíf hugsun mín og rafsegulbylgjur sem hún veldur...er það einhver GUÐ almáttugur eða er þetta tilviljun ein og ég móðursjúk?

hripað 8:05 PM



mánudagur, október 02, 2006
meira af þessum myndum er að finna hér !

broke back mountain boys paid us a visit...magnaðir tilburðir hjá hljómsveitinni.
ég og ásdís bak við hlöðu

hripað 11:36 AM



mánudagur, september 25, 2006
ég verð greinilega að endurskoða hugmyndir mínar um grunnskólann. þær voru í hæsta máta rómantískar og ekki í takti við raunveruleika íslenskrar æsku.
kenndi líffræði, náttúrufræði, stærðfræði, útivist og umsjón. sumir áttu í vandræðum með að sitja á stólnum en ekki stólbakinu, sumir áttu í vandræðum með að halda sig inni í stofunni og fundust úti á gangi eða hálfir út um gluggann. aðrir áttu bara í smávægilegum vandræðum eins og að geta ekki látið símann sinn vera ofan í tösku, aðrir gátu ekki verið án tónlistar....
já þau eru margbreytileg vandamálin sem ungdómurinn þarf að kljást við. megi þeim verða af því.

laugardeginum eyddi ég í rölt um miðbæ reykjavíkur, nánasta nágrenni semsagt.
kíkti niður á höfn þar sem verið er að rífa eitt mest sjarmerandi hús á svæðinu. kannast einhver við múrbrotin?
rölti um kolaportið og keypti hinn vikulega skammt af fjallagrasaflatkökum.
kíkti í nokkrar búðir. var næstum búin að tapa mér og fjárfesta í svipuðum dýramynsturskjól eins og ég nú þegar á. gaf sjálfri mér bitchslap sem átti að minna mig á að ég ætla ekki að verða neyslunni að bráð. viti menn það virkaði og ég fjölgaði ekki dýramynsturshlutum í skápnum mínum.

hripað 10:42 AM

maystar maystar maystar designs | maystar designs |
Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com